Vaktmenn í gjaldskýli hafa jafnframt augu á mengunarmælum og geta gripið til úrræða ef nauðsyn krefur. Til slíks hefur aldrei komið frá því göngin voru opnuð 1998, sjálfvirka viðbragðskerfið hefur alltaf brugðist við og virkað fullkomlega.
Við höfum sett hér inn á heimasíðuna fróðleik um svikryks- og loftmengunarvarnir ganganna (undir mengungarvarar) þar sem rakið er hvernig þetta umfangsmikla og skilvirka kerfi virkar, búnaður sem Raftákn ehf. á Akureyri hannaði. Þar kemur fram að útblástursmengun er vöktuð með sjálfvirkum nemum á fjórum stöðum í göngunum og svifryksmengun vöktuð með nemum á tveimur stöðum. Ef svifrykið eða útblástursmengunin fer yfir tiltekin mörk fara fyrstu blásarnir í göngunum sjálfkrafa í gang. Dugi það ekki til eru fleiri ræstir þar til allir 32 blásarar ganganna hafa verið virkjaðir. Fari svo að allur sá blástur nægi ekki grípur öryggiskerfið til þess ráðs að loka göngunum fyrir umferð á meðan blásararnir blása út menguðu lofti og draga inn ferskt loft í staðinn. Slíkt hefur aðeins einu sinni gerst frá upphafi, um verslunarmannahelgina 1998. Þá voru göngin lokuð í sex mínútur á meðan mengunarloftið var hreinsað út.
- Vegfarendur ættu að hafa sem reglu að hafa slökkt á miðstöð bíla og alla glugga lokaða á meðan ekið er undir Hvalfjörð. Það eru góðar varúðarráðstafanir bæði gagnvart útblástursmengun og svifryki.



