Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2008 Rúmlega 10% minni umferð í október

Rúmlega 10% minni umferð í október

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Ríflega 10 af hundraði færri bílar fóru um Hvalfjarðargöng í október en í sama mánuði í fyrra. Efnahagskreppan birtist þannig glögglega í umferð á þjóðvegum landsins.

Alls fóru 160.000 bílar um göngin í október 2007 en 143.000 í október í ár, með öðrum orðum fækkun um 17.000 bíla.

Rekstrarár Spalar er frá 1. október ár hvert til loka september á næsta ári. Á fyrri helmingi nýliðins rekstrarárs jókst umferðin í göngunum um 6,2% en svo hófst samdráttarskeiðið og bílum fækkaði í öllum mánuðum á síðari helmingi rekstarársins miðað við sama tímabil á árið þar á undan.

Þegar rekstarárið í heild var gert upp kom í ljós að umferðin hafði dregist örlítið saman. Horfurnar eru hins vegar aðrar og verri á nýbyrjuðu rekstrarári, ef marka má fyrstu vísbendingar. Samdrátturinn núna í október var meiri en í nokkrum mánuði á síðasta rekstarári og kemur tæplega á óvart eftir það sem á hefur gengið í þjóðfélaginu á haustdögum.