Rekstarár Spalar er frá byrjun október til loka september ár hvert og því er nýlokið rekstrarárinu sem hófst 1. október 2007. Umferðin í göngunum jókst verulega á rekstrarárinu október 2006 til september 2007 og aukning var áfram framan af nýliðnu rekstrarári. Í apríl 2008 urðu hins vegar snögg og greinileg umskipti þegar umferðin minnkaði um 7,3% miðað við sama mánuð 2007. Eftir það hefur verið samdráttur í öllum mánuðum á síðari hluta rekstrarársins, misjafnlega mikill þó.
Þegar rekstrarárið er gert upp í heildina kemur í ljós að um göngin fóru alls 1.994.700 bílar en 1.996.500 bílar á rekstrarárinu þar á undan, þ.e.a.s. 0,09% samdráttur.
- Nettótekjur félagsins drógust saman um 7% á nýliðnu rekstrarári miðað við rekstrarárið þar á undan.
- Áskriftarsamningum hefur fjölgað talsvert. Þeir eru nú um 14.700 talsins og í notkun eru 36.300 veglyklar í bílum land



