Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2008 Nýir stjórnarmenn

Nýir stjórnarmenn

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Nýkjörin stjórn SpalarBreytingar urðu í stjórnum beggja Spalarfélaganna á aðalfundum þeirra nú og vel að merkja: tvö félög er til um Hvalfjarðargöng og heita bæði Spölur. Upprunalega félagið, stofnað á Akranesi í janúar 1991, varð að eignarhaldsfélagi í desember 1995 og hefur það hlutverk að eiga eina hlutabréfið í einkahlutafélaginu Speli sem þá var stofnað. Þetta var gert á sínum tíma til að auðvelda veðsetningu hlutafjár í Speli (eitt hlutafjárskírteini í stað margra).

Spölur ehf. annast rekstur ganganna uns skuldir félagsins hafa verið greiddar upp samkvæmt samningi við samgönguráðuneytið fyrir hönd ríkisins.

Í nýkjörinni stjórn Eignarhaldsfélagsins Spalar sitja:
  • Gunnar Gunnarsson, aðstoðarvegamálastjóri, formaður.
  • Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna.
  • Guðlaugur Hjörleifsson, verkfræðingur.
  • Hafsteinn S. Hafsteinsson, lögfræðingur í fjármálaráðuneytinu.
  • Einar Þorsteinsson, forstjóri Íslenska járnblendifélagsins.
Einar kom inn í stjórnina á aðalfundinum nú í stað Þórðar Magnússonar, framleiðslustjóra Íslenska járnblendifélagsins.

Í nýkjörinni stjórn Spalar ehf. sitja:
  • Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, formaður.
  • Gunnar Gunnarsson, aðstoðarvegamálastjóri.
  • Hafsteinn S. Hafsteinsson, lögfræðingur í fjármálaráðuneytinu.
  • Einar Þorsteinsson, forstjóri Íslenska járnblendifélagsins.
  • Hlynur Sigurbjörnsson, varaoddviti í Hvalfjarðarsveit.
Einar kom inn í stjórnina á aðalfundinum nú í stað Þórðar Magnússonar og Hlynur í stað Hallfreðar Vilhjálmssonar, oddvita Hvalfjarðarsveitar.