Umferðin í Hvalfjarðargöngum er í heildina minni það sem af er rekstrarári Spalar en á sama tíma í fyrra en sveiflurnar eru umtalsverðar á köflum frá mánuði til mánaðar. Þannig var samdrátturinn 14% í mars miðað við sama mánuð 2008 en í apríl var aukningin hins vegar hátt í 4%. Í maí var örlítill samdráttur, upp á 1,45%.
Rekstrarár Spalar eru frá októberbyrjun til septemberloka. Hér fyrir neðan eru tölurnar um fjölda ökutækja í hverjum mánuði yfirstandandi rekstrarárs og fyrra rekstrarárs og svo hlutfallslega breytingu frá fyrra ári.
|
Umferð |
Okt |
Nóv |
Des |
Jan |
Febr |
Mars |
Apríl |
Maí |
|
2007/2008 |
160.072 |
146.624 |
130.650 |
124.188 |
125.777 |
155.842 |
154.619 |
178.186 |
|
2008/2009 |
143.563 |
137.634 |
127.985 |
125.797 |
122.668 |
134.024 |
160.537 |
175.599 |
|
Breyting |
-10,31% |
-6,13% |
-2,04% |
1,30% |
-2,47% |
-14,00% |
3,83% |
-1,45% |



