Mikil mildi var að ekki fór verr í göngunum þegar lítill fólksbíll fór yfir á rangan vegarhelming og lenti framan á flutningabíl sem kom úr gagnstæðri átt. Þetta átti sér stað um þrjúleytið í gær, 6. júlí, um 150 metrum inni í göngunum norðanverðum.
Aðkoman var býsna skuggaleg og þurfti að klippa ökumann fólksbílsins, unga konu, út úr flakinu. Sú var ein á ferð og reyndist einungis hafa fengið skrámur og mar, sem telst einkar vel sloppið þegar horft er til þess að þarna lentu saman smábíll og fjögurra öxla flutningabíll með eftirvagn! Myndirnar tala sínu máli um aðkomuna.





