Umferðartölur það sem af er sumri benda eindregið til þess að landsmenn ferðist nú meira um eigið land en áður. Meðaltalsumferðin í Hvalfjarðargöngum júlímánuði hefur verið yfir 8.100 bílar á sólarhring að jafnaði, sem er umtalsvert meira en á sama tíma í fyrra.
Mesta helgarumferðin í göngunum hingað til var 19. til 21 júní þegar m.a. var knattspyrnumót yngstu flokkanna á Akranesi. Þá fóru alls 29.000 bílar um göngin frá föstudegi til sunnudags.
Fyrstu helgina í júlí var helgarumferðin 28.200 bílar og nú um nýliðna Landsmótshelgi fóru alls um 28.000 bílar undir Hvalfjörð, þar af 11.000 á föstudaginn.
Allar helgar sumarsins er þannig í raun annatími í umferðinni og framundan eru í það minnsta tvær miklar ferðahelgar, sjálf verslunarmannahelgin og svo Fiskidagurinn mikli á Dalvík viku síðar.



