Rjúpnaskyttur með blik í augum, byssu í skotti og högl í vasa þustu undir Hvalfjörð, áleiðis vestur og norður í land, þegar göngin voru opnuð kl. 5:30 í morgun að loknum viðhaldsverkum og götuþvotti. Þetta var fjórða og síðasta nóttin sem Hvalfjarðargöng voru lokuð í þessari viku og verkefnalistinn tæmdist á tilsettum tíma. Rjúpaskyttur höfðu nokkrar áhyggjur af framgangi verksins og hringdu talsvert í Spöl fram eftir vikunni til hafa á hreinu hvort göngin yrðu opin snemma að morgni fyrsta rjúpnaveiðidags ársins, sem einmitt er í dag, 30. nóvember.
Helsta tilefni næturlokunar að þessu sinni var að treystingar festingar grinda sem halda uppi öryggis- og hlífðardúkum í göngunum. Á nokkrum stöðum höfðu festingarnar farið illa af tæringu og voru því endurnýjaðar.
Þá var miðlínan, sem skilur að akreinarnar í göngunum, fræst í fyrsta sinn. Ökumenn verða því örugglega varir við það hér eftir ef þeir aka yfir eða eftir miðlínunni. Þetta er afar mikilvægt öryggismál fyrir vegfarendur.
Ýmislegt fleira dunduðu menn sér við í skjóli nætur á meðan göngin voru lokuð, meðal annars að þurrka ryk af ljósum og skipta um perur þar sem þess gerðist þörf. Gjaldskýlið var málað í hólf og gólf og alveg í lokin voru gangbrautirnar þvegnar og skrúbbaðar. Jólahreingerningu ársins er því lokið undir Hvalfirði.
![]() |
![]() |
|
Svipmyndir af ,,næturvöktum" í göngum og
Myndir: Marinó Tryggvason |
![]() |
![]() |
![]() |
| Málari að störfum í gjaldskýlinu. | Nýfræst miðlína akbrautarinnar. |








