Veggjald í Hvalfjarðargöngum hækkar um tæplega 13% að jafnaði frá og með 1. febrúar 2010. Stjórn Spalar tilkynnti þetta með tilkynningu til fjölmiðla í dag.
- • Gjald fyrir staka ferð í I. gjaldflokki fer úr 800 í 900 krónur.
- • Hver ferð áskrifanda að 100 ferðum í I. flokki fer úr 230 í 259 krónur.
- • Inneign áskrifenda minnkar sjálfkrafa við gjaldskrárbreytinguna, þ.e. ónotuðum ferðum fækkar sem svarar til hækkunar veggjaldsins.
Verðlagsþróun og afkoma Spalar undanfarin tvö ár kalla á gjaldskrárbreytinguna, enda er ljóst að tekjur af veggjaldi hafa rýrnað verulega undanfarin misseri á sama tíma og verðbætur á lán félagsins og flestir rekstrarliðir hafa hækkað.
Forráðamenn Spalar þurfa á hverjum tíma að gæta þess að afkoma félagsins geri því fært að standa við samninga við lánveitendur þess um að áhvílandi lán Spalar greiðist upp árið 2018.
Spölur hefur einu sinni áður hækkað veggjaldið frá því göngin voru opnuð í júlí 1998 eða um 10% í apríl 2001. Veggjaldið hefur hins vegar verið lækkað fimm sinnum, mest í apríl 2005 þegar verð 100 áskriftarferða fyrir fjölskyldubíla lækkaði um 38%.
Þegar horft er til verðlagsþróunar hefur raunvirði veggjalds í Hvalfjarðargöngum lækkað að meðaltali um 71% frá 1998. Í upphaflegum samningum við lánveitendur var kveðið á um að gjaldið skyldi fylgja verðlagsbreytingum á Íslandi (vísitölu framfærslukostnaðar). Sú varð hins vegar aldrei raunin því umferð undir Hvalfjörð varð strax mun meiri en gert hafði verið ráð fyrir og auknar tekjur gerðu Speli mögulegt að láta viðskiptavini sína njóta mun lægra veggjalds en lánaskilmálar kváðu á um. Þannig kostaði stök ferð í I. gjaldflokki 1.000 krónur fyrstu árin, lækkaði síðan í 900 krónur í maí 2007 og síðar í 800 krónur í mars 2008. Þetta gjald fer sem sagt í 900 krónur á nýjan leik í febrúar 2010 en hefði orðið 1.950 krónur ef vísitöluhækkunin réði för í gjaldskrármálum Spalar!
|
|
Áskrift + afsláttur 1. febr. 2010, kr. |
„Gamla verðið“ (janúar 2010), kr. |
Gjald fyrir ferð 1. febr. 2010, kr. |
„Gamla verðið“ (janúar 2010), kr. |
Verðbætt veggjald í kr.* |
Raunlækkun frá 1998* |
|
Gjaldflokkur I |
|
|
|
|
|
|
|
Stök ferð |
|
|
900 |
800 |
1.950 |
53,8% |
|
10 ferðir – afsl.kort |
5.800 |
5.200 |
580 |
520 |
|
|
|
40 ferðir í áskrift |
15.520 |
13.800 |
388 |
345 |
1.170 |
66,8% |
|
100 ferðir í áskrift |
25.900 |
23.000 |
259 |
230 |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gjaldflokkur II |
|
|
|
|
|
|
|
Stök ferð |
|
|
1.200 |
1.100 |
|
|
|
40 ferðir í áskrift |
42.000 |
38.400 |
1.050 |
960 |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gjaldflokkur III |
|
|
|
|
|
|
|
Stök ferð |
|
|
2.300 |
2.000 |
5.850 |
60,7% |
|
40 ferðir í áskrift |
80.000 |
69.200 |
2.000 |
1.730 |
4.387 |
54,4% |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gjaldflokkur IV |
|
|
|
|
|
|
|
Stök ferð |
|
|
3.100 |
2.700 |
7.410 |
58,2% |
|
40 ferðir í áskrift |
108.000 |
94.000 |
2.700 |
2.350 |
5.557 |
51,4% |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gjaldflokkur V |
|
|
|
|
|
|
|
Mótorhjól |
|
|
200 |
200 |
1.170 |
82,9% |
* Í tveimur öftustu dálkunum („verðbætt veggjald“ og „raunlækkun frá 1998“) eru til fróðleiks birtar annars vegar tölur um veggjaldið eins og það yrði 1. febrúar 2010 ef það fylgdi verðlagsbreytingum og hins vegar um raunvirðislækkun gjaldsins á rekstrartíma ganganna.
Vísitala framfærslukostnaðar hefur hækkað um 95% frá því Hvalfjarðargöng voru opnuð í júlí 1998. Í samningum við lánveitendur ganganna var kveðið á um að veggjaldið skyldi fylgja verðlagsþróuninni. Reyndin hefur orðið allt önnur eins og þessar tölur sýna glöggt!
Rétt er að nefna að einungis er hér fjallað um verðlagsþróun gjald- og áskriftarflokka sem hafa verið í gjaldskrá Spalar frá upphafi.



