Umferð í Hvalfjarðargöngum í marsmánuði var 7,2% meiri en í sama mánuði í fyrra. Fjölgunin nemur tæplega 9.800 bílum. og kann að hluta að skýrast af því að hluti páskaumferðarinnar lenti marsmegin við mánaðarmótin.
Öll páskaumferðin í fyrra var í aprílmánuði en nú bar skírdag upp á 1. apríl og því deilist páskaumferðin í ár augljóslega á bæði mars og apríl í umferðarbókhaldi Spalar.
Rekstrarár Spalar er nú hálfnað og staðan í hálfleik 2010 er sú að einungis vantar um 2.800 bíla upp á að jafna umferðartölurnar á miðju rekstrarári í fyrra.
Þegar horft er til góðæris- og glansmyndaskeiðins fyrir kreppu kemur í ljós að 54.000 bíla vantar í umferðartölurnar nú miðað við fyrri hluta rekstrarársins 2007-2008. Umferðin nú er með öðrum orðum hátt í 7% minni fyrstu sex mánuði yfirstandandi rekstrarárs en á sama tímabili fyrir tveimur árum, í aðdraganda hruns íslenskrar krónu um vorið og síðan bankanna um haustið.
- Og svo fróðleiksmoli í lokin að gefnu tilefni. Veggjöld eru talsvert í umræðunni þessa stundina vegna samgönguverkefna sem ríkið ræðir við lífeyrissjóði um að fjármagna. Í Morgunblaðinu í dag er haft eftir vegamálastjóra að á milli 35.000 og 40.000 veglyklar séu nú í bílum landsmanna á vegum Spalar vegna Hvalfjarðarganga. Það skal upplýst að þeir voru nákvæmlega 39.444 talsins í lok mars 2010.
Þetta yfirlit miðast við rekstrarár Spalar, þ.e. frá byrjun október til loka september ár hvert.
|
Umferð |
Okt |
Nóv |
Des |
Jan |
Febr |
Mars |
|
2007/2008 |
160.072 |
146.624 |
130.650 |
124.188 |
125.777 |
155.842 |
|
2008/2009 |
143.569 |
137.682 |
128.042 |
125.822 |
122.739 |
134.034 |
| 2009/2010 | 143.643 | 136.842 | 126.961 | 122.161 | 115.741 | 143.807 |
|
Breyting* |
+0,05% |
-0,61% |
-0,84% |
-2,91% |
-6,07% |
+7,29 |
*Þ.e. breyting frá sömu mánuðum rekstrarárið 2008/2009
|
Umferð |
Apríl |
Maí |
Júní |
Júlí |
Ágúst |
Sept |
Alls |
|
2007/2008 |
154.619 |
178.186 |
204.407 |
238.715 | 223.700 | 164.209 | 2.006.090 |
|
2008/2009 |
160.586 |
176.350 |
213.155 |
248.994 | 218.850 |
161.693 | 1.971.516 |
| 2009/2010 | |||||||
|
Breyting* |
|
|
|



