Hvalfjarðargöng verða lokuð næstu fjórar nætur vegna viðhalds og vorhreingerningar. Lokað verður aðfaranótt þriðjudags 27. apríl, miðvikudags 28. apríl, fimmtudags 29. apríl og föstudags 30. apríl 2010 frá miðnætti til kl. 6 að morgni.
Næturlokun vegna vorhreingerningar er árlegur viðburður í starfsemi ganganna og í loftinu lá - í orðsins fyllstu merkingu - að gosið í Eyjafjallajökli myndi raska hreingerningar- og viðhaldsáætlun að þessu sinni vegna lokunar Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkurflugvallar af völdum öskuskýja í háloftum. Þegar slíkt gerist vex vegur Akureyrarflugvallar þá að sama skapi, að því auðvitað gefnu að askan loki honum ekki líka.
Nú er hins vegar útlit fyrir að flugvellir fyrir sunnan verði opnir næstu daga og því var í morgun gefið grænt ljós á að halda áætlun um vorhreingerningu undir Hvalfirði.



