Umferð í Hvalfjarðargöngum og tekjur Spalar af henni eru í samræmi við áætlanir það sem af er rekstrarári félagsins. Umferðin á síðari hluta rekstrarársins er jafnan mun meiri en á þeim fyrri og því er útlit fyrir að afkoma Spalar verði vel viðunandi á rekstrarárinu öllu. Þetta kemur fram í uppgjöri Spalar 1. október 2009 til 31. mars 2010 fyrir Kauphöll Íslands.
Rekstrarár Spalar er frá október til september og yfirstandandi rekstrarár var því hálfnað í lok mars 2010. Spölur hækkaði gjaldskrá ganganna um 12,5% 1. febrúar vegna mikillar verðbólgu 2008 og 2009. Áhrifa þeirrar hækkunar gætir í uppgjöfi fyrri hluta rekstrarársins.
- Tap Spalar ehf. eftir skatta var 40,6 milljónir króna frá 1. október til 1. mars en á sama tímabili í fyrra var tap félagsins 233 milljónir króna.
- Á öðrum ársfjórðungi, frá 1. janúar til 31. mars 2010, hagnaðist Spölur um 13,5 milljónir króna eftir skatta en tapaði á sama tímabili í fyrra 88 milljónum króna.
-
- Á öðrum ársfjórðungi, frá 1. janúar til 31. mars 2010, hagnaðist Spölur um 13,5 milljónir króna eftir skatta en tapaði á sama tímabili í fyrra 88 milljónum króna.
- Tekjur af veggjaldi voru 356 milljónir króna á fyrra helmingi rekstrarársins en voru 344 milljónir króna á sama tímabili í fyrra, sem er aukning um 3,5%.
- Rekstrarkostnaðru án afskrifta var 147 milljónir króna á fyrri helmingi rekstrarársins en var 129 milljónir á sama tíma í fyrra. Skýringar er að leita í auknum launakostnaði, aukinni aðkeyptri ráðgjafarþjónustu og afskrifaðum viðskiptakröfum vegna gjaldþrota.
- Vaxtagjöld, verðbætur og gengismunur lækkuðu um 213 milljónir króna frá því í fyrra.
- Spölur skuldaði 4.615 milljónir króna í lok mars 2010 en 4.413 milljónir króna í upphafi rekstrarársins, 1. október 2009.
- Eiginfjárhlutfall félagsins var 4,91% á miðju rekstrarárinu en 5,94% við upphaf þess.



