Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Fréttir Fréttir 2010 Tólf á 90 km hraða og þar yfir

Tólf á 90 km hraða og þar yfir

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Staðfest er með ítrekuðum hraðamælingum lögreglu að þorri ökumanna virðir reglur um hámarkshraða í Hvalfjarðargöngum. Lítið er um hraðakstur og ofsaakstur heyrir til hreinna undantekninga. Gott er nú það.

 

Lögregla mældi hraða ökutækja á norðurleið um göngin frá fimmtudegi 27. maí til fimmtudags 3. júní 2010. Á þessum tíma fóru 10.348 ökutæki fram hjá myndavélinni og af þeim fóru 155 yfir strikið eða 1,5%.

Meðalhraði hinna brotlegu var 83,5 km á klst. og einungis tólf óku á 90 km hraða eða meira. Sá sem hraðast ók mældist á 101 km hraða og má búast við að borga 50.000 krónur í ríkissjóð og fá skráða tvo punkta í ökuferilskladdann sinn.

ragnar-thor-hradamels

Ragnar Þór Árnason, varðstjóri lögreglu höfuðborgarsvæðisins, fylgist með umferð í göngunum.