Lokað í þrjár nætur vegna vorhreingerningar
Hvalfjarðargöng verða lokuð í þrjár nætur núna í páskavikunni vegna árlegs viðhalds og vorhreingerningar. Þetta á við aðfaranætur miðvikudags 27. apríl, fimmtudags 28. apríl og föstudags 29. apríl. Umferð verður ekki leyfð frá miðnætti til kl. 6 að morgni.


