Lokað næstu nætur
Hvalfjarðargöng verða lokuð næstu nætur, eins og boðað hefur verið hér á heimasíðunni. Fyrsta lokunin af fjórum í þessari viku er sem sagt á dagskrá núna aðfaranótt 1. nóvember og síðan verður lokað fimm nætur í næstu viku og fimm nætur í þar næstu viku frá miðnætti til kl. 6 að morgni. Ástæða þessa er viðhald og endurbætur í göngunum.