Veglykill - eigendaskipti bíls
Ef ökutæki með veglykli er selt ber seljanda annað hvort að
- taka veglykilinn úr ökutækinu um leið og salan á sér stað og skila honum á afgreiðslustað Spalar.
EÐA
-
tilkynna Speli um það í síma 431 5900 eða með tölvupósti til This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. (ef skipt er um ökutæki).
Ath: Ef nýr eigandi ökutækis vill hafa veglykil í ökutækinu þarf viðkomandi að gera áskriftarsamning við Spöl á einhverjum af afgreiðslustöðum Spalar og fá þar veglykil.
Veglykill, sem tekinn er af framrúðunni, getur orðið ónothæfur ef límfesting skemmist eða fótur verður eftir á rúðu. Hægt er að fá nýjan fót sendan í pósti með því að hringja í afgreiðslu Spalar í síma 431 5900.
Ef bíll er seldur með veglykli í er veglykillinn á ábyrgð fyrri eiganda (samningshafa) þar til honum hefur verið skilað til Spalar eða gengið hefur verið frá eigandaskiptum á veglyklinum gagnvart Speli. Kaupandi bílsins getur látið flytja viðkomandi veglykil á áskriftarsamning á sínum vegum.
Áskrifandi ber ábyrgð á veglykli sínum gagnvart Speli þar til honum hefur verið skilað til Spalar.


