Print

Hvar fæst veglykill?

Veglyklar eru afhentir áskrifendum hjá Olíudreifingu ehf. að Hólmaslóð 8-10 í Reykjavík en einnig á þjónustustöðvum N1 á Ártúnshöfða og við Háholt í Mosfellsbæ, OLÍS við Sundagarða/Kleppsveg í Reykjavík, Select Bústaðavegi við Öskjuhlíð í Reykjavík. Einnig fást veglyklar í þjónustustöðvum N1 og OLÍS í Borgarnesi, OLÍS á Akranesi, og á skrifstofu Spalar ehf. að Mánabraut 20 á Akranesi (Sementsverksmiðjan).

Áskriftarferðir eru greiddar fyrirfram. Áskrifandi greiðir 3.000 króna skilagjald fyrir veglykil og fær það endurgreitt ef áskrift er sagt upp og veglykli er skilað til Spalar.

Frá og með 1. október 2009 er skilagjald innheimt af öllum veglyklum sama áskrifanda.

Afgreiðslutími Spalar og Olíudreifingar er virka daga kl. 8:00-12:00 og 13:00-16:00, að undanskildum föstudögum þegar lokað er kl. 15:00.

Veglykill fylgir ákveðnum bíl og óheimilt er að flytja tækið á milli bíla. Fjölskylda með tvo eða fleiri bíla verður þannig að fá veglykil í hvern bíl, ef svo ber undir, en hún getur hins vegar tengt alla sína lykla einum áskriftarreikningi. Ef fjölskylda hefur til dæmis tvo bíla með tveimur lyklum og kaupir 40 ferðir í áskrift geta bílarnir nýtt þennan "ferðapott" sameiginlega.