Hollráð til vegfarenda í göngunum
Hámarkshraði er 70 kílómetrar á klukkustund. Virðið hraðamörkin og njótið þess að aka í 6 mínútur örugglega undir fjörðinn. - Munið að það tekur stundarkorn fyrir augun að venjast rökkrinu í göngunum ef bjart er fyrir utan. Á sama hátt getur ljós fallið þannig inn í gangaop hinum megin að ökumenn blindist skyndilega eða sjái illa fram á veginn um leið og þeir aka út úr göngunum. Hagið ökuhraða í samræmi við þetta.
- Fjarlægðarskyn ökumanna er öðruvísi í veggöngum en á akbrautum annars staðar. Haldið því góðu bili á milli bíla og forðist framúrakstur. Gætið ítrustu varúðar ef þið teljið ykkur þurfa að aka fram úr bíl í göngunum.
- Hafið opið útvarp í bílnum og stillið á rásir Ríkisútvarpsins (93,5 eða 90,1) eða á Bylgjuna (98,9). Vaktmenn í gjaldskýli geta rofið þessar útsendingar og komið skilaboðum/leiðbeiningum til ökumanna í göngunum ef nauðsyn krefur.
- Akið á miðri hægri akrein á leiðinni gegnum göngin og haldið einbeitingu við aksturinn. Augnabliks gáleysi getur orðið dýrkeypt ef ekið er utan í kantsteina eða sjálfan gangavegginn.