- FM-útvarpssendingar Ríkisútvarpsins (93,5 og 90,1) og Bylgjunnar (98,9) heyrast í bílum alla leiðina gegnum göngin. Vaktmaður í gjaldskýli getur rofið útsendingar útvarps og flutt vegfarendum í göngunum tilkynningar, ef ástæða þykir til.
- 40 öflugar viftur hreinsa mengun frá bílum í göngunum.
- Neyðarsímar eru með 500 metra millibili í göngunum.
- Sólarhringsvakt er í gjaldskýli í norðurenda ganganna og þaðan er beint símasamband við slökkvilið.
- Sérstakir nemar eru í göngunum tengdir tölvukerfi í gjaldskýli. Starfsmenn þar geta fylgst stöðugt með mengun, leka og fleiru og lokað göngunum fyrir umferð ef þurfa þykir.
- Slökkvitæki eru með 250 metra millibili í göngunum. Slökkvilið fær sjálfkrafa boð úr göngunum ef slökkvitæki er tekið af sínum stað. Slökkvilið á Akranesi getur komið á vettvang innan tíu mínútna frá útkalli. Auk þess er slökkvibíll á Grundartanga, annar á Kjalarnesi og Slökkvilið Reykjavíkur er ekki langt undan.
- Eldþolið efni er í klæðningu í göngum.
- Í göngunum eru útskot, nægilega stór til að hægt sé að snúa við flutningabílum.
- Varaaflsstöð er til taks ef rafmagn frá rafveitu bregst.
- Gul leiðiljós eru í göngunum með 25 metra millibili og lýsa allan sólarhringinn. Auk þess er varalýsing með rafhlöðum með 100 metra millibili.