Spölur - Hvalfjarðargöng

Forsíða Sögumolar Tvær útlitstillögur

Athyglisverðar útlitstillögur

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út



   
Ýmsar hugmyndir voru uppi um það á sínum tíma hvernig munnar Hvalfjarðarganga skyldu líta út. M.a. veltu menn vöngum yfir útfærslu á hvalkjafti sem ekið yrði inn í.

Drátthagur teiknari setti til gamans á blað hugrenningar um hvernig væri hægt að leysa málið þannig að eftir yrði tekið. Einn af yfirmönnum Vegagerðarinnar horfði þögull góða stund á meðfylgjandi teikningar og sagði svo: "Þetta er gott svo langt sem það nær en ég myndi vilja sjá hvernig hönnuðurinn hugsar sér að gangamunninn hinum megin eigi að líta út!"