Vefyfirlit - leiðbeiningar
Innskráning
Aðgangsorð notenda er samningsnúmer þeirra, en það kemur fram á greiðsluseðli. Upprunalegt lykilorð er póstnúmer lögheimilis viðskiptavinar samkvæmt þjóðskrá. Við hvetjum fólk til að breyta lykilorði strax, sem er valmöguleiki þegar notandi hefur skráð sig inn á vefsvæðið.
Glatað lykilorð
Fari svo að notandi glati lykilorði sínu er unnt að fá nýtt aðgangsorð með því að senda tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .
Mín síða
Á þessari síðu má sjá eftirfarandi upplýsingar:

- Upplýsingar úr viðskiptamannaskrá Spalar.
- Vinsamlegast sendið leiðréttingar í tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. ef upplýsingar í viðskiptamannaskrá eru ekki réttar.
- Ferðayfirlit uppfært til – sýnir dagsetningu og tíma síðustu uppfrærslu á ferðayfirliti.
- Reikningsnúmer og staða reiknings við síðustu uppfærslu á ferðayfirliti. Hver viðskiptavinur getur haft fleiri en eitt reikningsnúmer.
- Síðast greiddur reikningur sýnir hvenær greiðsla frá viðskiptavini var síðast móttekin af Speli.
- Ökutæki á samningi.
- Bílnúmer, veglykill skráður á viðkomandi ökutæki, gjaldflokkur og staða viðkomandi veglykils. Aðeins einn veglykill getur verið gildur á hvert ökutæki.
Ferðayfirlit
Á þessari síðu má fletta upp ferðayfirliti fyrir tiltekið tímabil með því að slá inn dagsetningar í þar til gerða reiti efst á síðunni og smella á leitarhnappinn.
Einnig má smella á númer hvers reiknings. Þar sem áskriftarsamningar eru fyrirfram greiddir þá birtist ferðayfirlit yfir ferðir farnar fram til útgáfudags þess reiknings sem valinn er frá útgáfudegi þarnæsta reiknings á undan.
Ferðayfirlit er birt fyrir hvert ökutæki sem skráð eru á áskriftarsamning auk samtölu yfir fjölda ferða og veggjald.