Hvað er veglykill?
Veglykill er tæknibúnaður í litlum kassa sem límdur er innan á framrúðuna bak við útsýnisspegilinn. Loftnet nemur boð frá veglyklinum í hvert sinn sem áskrifandi á leið um gjaldhliðið og skráir ferðina sjálfvirkt í upplýsingakerfi Hvalfjarðarganga. Móðurtölvan "þekkir" lyklana sem í umferð eru, dregur hverja ferð frá inneign áskrifandans og lætur hann vita með ljósmerki um stöðu áskriftarreikningsins. Þegar allar ferðir áskrifanda hafa verið notaðar er 40 eða 100 ferðum bætt við, samkvæmt samningi við Spöl ehf. og sendur út greiðsluseðill fyrir ferðunum eða þær skuldfærðar á greiðslukortareikning viðkomandi.
Gjaldtökukerfið í Hvalfjarðargöngum er nýmæli á Íslandi, hvernig sem á málið er litið. Ný tækni kallar á nýyrðasmíði og nauðsynlegt var að finna þjálft og gott heiti á litla kassann sem áskrifendur Spalar fengu á framrúðu bíla sinna. Ýmsar tillögur voru viðraðar áður en Hvalfjarðargöng voru opnuð fyrir umferð en nýyrðið VEGLYKILL þótti bera af og festist fljótt og vel í málinu. Starfsmenn Íslenskrar málstöðvar eiga heiðurinn af orðinu veglykill.