
Staupasteinn var áður í þjóðbraut í Hvalfirði nálægt Hvammsvík. Hann er afar sérstæður, líkastur glasi á á mjóum stöpli. Á honum eru þekkt að minnsta kosti fjögur nöfn: Prestur, Steðji, Karlinn í Skeiðhól og Staupasteinn. Flestir kannast trúlega við klettinn sem Staupastein en á vegvísi við þjóðveginn er hann nefndur Steðji. Kletturinn og næsta nágrenni er friðlýst sem náttúruvætti. Einbúinn okkar býr í klettinum sjálfum og í brekkunni þar hjá. Erla Stefánsdóttir veit einungis um 8 einbúa sömu ættar á Íslandi. Einn býr til dæmis við Brynjudalsá í Hvalfirði, tveir eru í Kópavogi og einn heldur sig nálægt þjóðveginum við Blönduós.