top of page

Search Results

Search this site

6 results found with an empty search

  • Spurt og svarað | Spolur

    Finndu svör við algengum spurningum um veggjald, greiðslur og umferð um nýju brúna yfir Hornafjarðarfljót. Um gjaldtökuna Hvers vegna er tekið veggjald? Veggjaldið er innheimt til að standa undir hluta af framkvæmdakostnaði nýs Hringvegar um Hornafjörð og hluta af rekstrarkostnaði mannvirkisins. Samkvæmt lögum er Vegagerðinni heimilt að innheimta veggjöld í þeim tilgangi. Hvernig verða tekjur af veggjöldunum? Tekjurnar verða nýttar til að greiða niður hluta framkvæmdakostnaðarins og standa undir hluta af rekstri og viðhaldi nýja vegarins og brúarinnar. Hverjir þurfa að greiða veggjaldið? Almennt eru öll ökutæki sem aka um gjaldskyldan vegkafla gjaldskyld, hvort sem um er að ræða fólksbíla, rútur eða vörubíla. Tiltekin ökutæki í neyðar- og almannaþjónustu eru undanþegin. Hvar hefst gjaldskyldan? Gjaldskylda stofnast þegar ekið er um skráningargáttir við brúna. Búnaðurinn les númeraplötu ökutækisins og skráir ferðina. Staðsetning búnaðar er austan við Djúpárafleggjara. Þarf ég að stöðva til að greiða? Nei. Gjaldtakan er rafræn og engin tollhlið eða greiðslustöð er á veginum. Myndavélar lesa númeraplötur ökutækja á ferð. Hvað gerist ef ég sný við á hringtorginu? Ef ökutækið fer ekki um gjaldgáttina sjálfa er ekkert veggjald innheimt. Verð og greiðslur Hvað kostar stök ferð? Stök ferð kostar 1.500 kr. fyrir ökutæki undir 3,5 tonnum, 2.100 kr. fyrir ökutæki frá 3,5 til 7,5 tonna og 4.500 kr. fyrir ökutæki yfir 7,5 tonnum. Nánari upplýsingar um afslætti og mánaðarhámark eru í verðskrá á spolur.is . Þarf ég að skrá ökutæki í kerfið? Ekki er þörf á að skrá ökutæki í kerfið. Það gerist sjálfkrafa þegar ekið er um skráningargátt (myndavél og greiningarbúnaður). Hvernig er greitt fyrir ferðir? Alla jafna birtist mánaðarlega krafa í heimabanka. Einnig er hægt að greiða fyrir stakar ferðir á greiðslusíðu spolur.is. Get ég fengið afslátt? Já. Þegar farnar eru fleiri ferðir innan sama mánaðar lækkar verð á hverja ferð sjálfkrafa samkvæmt gildandi verðskrá Spalar. Þar kemur einnig fram hámarksgjald á mánuði fyrir hvern þyngdarflokk. Hvenær er gjaldið innheimt? Gjald er innheimt í lok mánaðar í heimabanka. Þar koma gjalddagi og eindagi greiðslu fram. Yfirlit yfir ferðir og greiðslur er aðgengilegt á Mínum síðum á spolur.is. Hvar finn ég kvittanir og reikninga? Kvittanir og reikningar eru vistaðir á Mínum síðum á spolur.is og þar er hægt að sækja þá á PDF-sniði. Hvað gerist ef ég gleymi að greiða? Ef ferð er ekki greidd innan tilskilins frests getur viðbótarkostnaður bæst við og krafa verið send eiganda ökutækisins. Get ég andmælt álagningu veggjalds? Já. Teljir þú að veggjald hafi verið lagt á með röngum hætti getur þú sent inn athugasemd eða andmæli á spolur.is. Tilgreina þarf skráningarnúmer ökutækis, dagsetningu ferðar og númer reiknings, ef við á. Ökutæki, undanþágur og sérstök tilvik Þurfa neyðarbílar að greiða? Neyðarbílar eru undanþegnir veggjaldi. Sama á við um ökutæki björgunarsveita og lögreglu og önnur ökutæki sem falla undir skilgreindar undanþágur vegna almannaþjónustu. Gilda sérstakar reglur um rútur og vörubíla? Veggjaldið ræðst af þyngdarflokki ökutækis samkvæmt verðskrá. Að öðru leyti gilda ekki sérstakar greiðslureglur um rútur og vörubíla. Greiða rafbílar eða önnur umhverfisvæn ökutæki lægra gjald? Nei. Ekki er gert ráð fyrir sérstöku lægra gjaldi fyrir rafbíla eða önnur umhverfisvæn ökutæki. Hvernig er farið með erlend ökutæki og bílaleigubíla? Erlend ökutæki eru gjaldskyld með sama hætti og önnur ökutæki. Fyrir bílaleigubíla er gert ráð fyrir að bílaleigan innheimti veggjaldið af viðskiptavinum sínum samkvæmt sínum skilmálum. Hvaða reglur gilda um bíla með erlend bílnúmer? Ökumenn bíla á erlendum númerum geta greitt veggjaldið á spolur.is. Þá mun ferðafólk sem kemur hingað til lands með sínar eigin bifreiðar þurfa að greiða fast akstursgjald fyrir það tímabil sem það dvelur hér á landi. Skráning upplýsinga og persónuvernd Hvaða upplýsingar eru skráðar þegar ekið er um gjaldgáttina? Kerfið skráir þær upplýsingar sem eru nauðsynlegar til að staðfesta ferð og innheimta veggjald, svo sem númeraplötu, tíma og staðsetningu ferðar. Eru upplýsingar og myndir vistaðar? Upplýsingar og myndir sem tengjast númeraplötum eru aðeins varðveittar eins lengi og nauðsynlegt er til að ljúka innheimtu og sinna lögbundnu hlutverki kerfisins. Hvernig er persónuvernd tryggð? Meðferð upplýsinga fer fram í samræmi við lög um persónuvernd. Aðgangur að gögnum er takmarkaður og upplýsingarnar eru aðeins notaðar í þeim tilgangi sem þær voru skráðar fyrir. Nýi Hringvegurinn um Hornafjörð Hverjir eru helstu kostir nýja vegkaflans? Nýi vegurinn styttir Hringveginn um 12 km og leiðina að Höfn enn meira. Þremur einbreiðum brúm fækkar á Hringveginum og eftir standa 26 slíkar brýr. Framkvæmdin fól í sér lagningu 19 km af þjóðvegi og 9 km af hliðarvegum auk fjögurra nýrra tvíbreiðra brúa. Eldri vegur verður áfram nýttur fyrir innansveitarumferð. Hvaða þjónusta verður á gamla Hringveginum, nú Hornafjarðarvegur (987)? Vetrarþjónusta verður 5 daga vikunnar á 987 Hornafjarðarvegi og á 988 Djúpárvegi þ.e.a.s. alla daga nema þriðjudaga og laugardaga. Frekari upplýsingar Hvar get ég nálgast frekari upplýsingar eða sent inn fyrirspurn? Á spolur.is er hægt að skoða verðskrá, skrá ökutæki, greiða ferðir, nálgast reikninga og senda inn fyrirspurn eða athugasemd í gegnum netfangið spolur@spolur.is Spurt og svarað Hér eru svör við algengum spurningum um gjaldtöku, greiðslur og umferð um nýju brúna yfir Hornafjarðarfljót.

  • Sviðsmyndir | Spolur

    Skoðaðu sviðsmyndir sem sýna dæmi um kostnað, aksturssparnað og tímasparnað vegna nýju brúarinnar yfir Hornafjarðarfljót. Sviðsmyndir um áhrif veggjalds Íbúi á Mýrum/Suðursveit sem sækir vinnu/þjónustu daglega á Höfn Fjöldi ferða 45 ferðir/mánuði Veggjald 18.750 kr Kostnaður/ferð 417 kr/ferð Rekstrarkostnaður bifreiða skv. FÍB 30-45 kr/km Sparnaður í akstri 14 km x 45 = 630 km/mánuði Sparnaður í tíma 20 mín x 45 = 15 klst/mánuði Heildarsparnaður í rekstri bifreiðar: 18.900 – 28.350 kr. Beinn ávinningur íbúa í Mýrum/Suðursveit með lægri rekstrarkostnaði er því allt að 10.000 kr/mánuði óháð tímasparnaði. Íbúi á Höfn sem fer 1x mánuði til höfuðborgarsvæðisins Fjöldi ferða 2 ferðir/mánuði Veggjald 2.625 kr Kostnaður/ferð 1.313 kr/ferð Rekstrarkostnaður bifreiða skv. FÍB 30-45 kr/km Sparnaður í akstri 14 km x 2 = 28 km/mánuði Sparnaður í tíma 20 mín x 2 = 0,67 klst/mánuði Heildarsparnaður í rekstri bifreiðar: 840-1260 kr/mánuði Aukinn kostnaður notanda er því um 1.365 – 1.765 kr/mánuði. Hér er farið yfir mismunandi sviðsmyndir og áhrif gjaldtöku á ólíka notendahópa við brúna yfir Hornafjarðarfljót Íbúi á Mýrum/Suðursveit sem fer 2x í viku á Höfn Fjöldi ferða 10 ferðir/mánuði Veggjald 9.750 kr Kostnaður/ferð 975 kr/ferð Rekstrarkostnaður bifreiða skv. FÍB 30-45 kr/km Sparnaður í akstri 14 km x 45 = 140 km/mánuði Sparnaður í tíma 20 mín x 45 = 3,3 klst/mánuði Heildarsparnaður í rekstri bifreiðar: 4.200 – 6.300 kr. Aukinn kostnaður er því um 3.400 – 5.500 kr/mánuði. 40t flutningabíll sem fer 2x í viku Fjöldi ferða 10 ferðir/mánuði Veggjald 45.000 kr/mánuði Kostnaður/ferð 4.500 kr/ferð Ávinningur notanda: Kílómetragjald bíll>30t 45,17 kr/km Kílómetragjald eftirvagn 20t 29,77 kr/km Rekstrarkostnaður vörubifreiða 200 kr/km Sparnaður í akstri 14 km x 10 = 140 km/mánuði Sparnaður í tíma 20 mín x 10 = 3,3 klst/mánuði Kostnaður við veggjald 45.000 kr/mán Sparnaður 38.500 kr/mán Aukinn beinn kostnaður notenda er 6.500 kr/mánuði Tímasparnaður er 3,3 klst/mán Kostnaður við tíma atvinnuumferðar 6.000 kr/klst Sparnaður í tíma 19.800 kr/mán Heildarávinningur 13.300 kr/mán

  • Spölur | Veggjöld um Hornafjarðarfljót

    Spölur veitir upplýsingar um veggjöld vegna nýrrar brúar yfir Hornafjarðarfljót, verðskrá, greiðslur, reikninga og algengar spurningar Veggjöld um Hornafjarðarfljót Borga

  • Greiða | Spolur

    Greiddu veggjald fyrir akstur yfir nýju brúna yfir Hornafjarðarfljót á einfaldan og öruggan hátt á spolur.is. Greiða veggjald

  • Innskráning | Spolur

    Skráðu þig inn á Mínar síður til að skoða ferðir yfir nýju brúna yfir Hornafjarðarfljót, reikninga og greiðslustöðu. Mínar síður Velkomin á Mínar síður Spalar. Með innskráningu með rafrænum skilríkjum í gegnum Signet getur þú nálgast upplýsingar um ferðir yfir brúna yfir Hornafjarðarfljót, skoðað reikninga og haft yfirsýn yfir greiðslur þínar. Öll samskipti fara fram með öruggum hætti. Innskráning

  • Verðskrá | Spolur

    Skoðaðu verðskrá fyrir akstur yfir nýju brúna yfir Hornafjarðarfljót, þar á meðal gjöld eftir stærð ökutækis og fjölda ferða. Verðskrá Ökutæki undir 3,5 tonnum Fjöldi ferða Verð Stök ferð 1.500 kr. 2–5 ferðir 950 kr./ferð 6–15 ferðir 750 kr./ferð Hámarksgjald á mánuði 18.750 kr. Ökutæki 3,5 - 7,5 tonn Fjöldi ferða Verð Stök ferð 2.100 kr. 2–5 ferðir 1.330 kr./ferð 6–15 ferðir 1.050 kr./ferð Hámarksgjald á mánuði 26.250 kr. Ökutæki yfir 7,5 tonnum Fjöldi ferða Verð Stök ferð 4.500 kr.

bottom of page