top of page

Um gjaldtökuna
 

  • Brú

    Veggjaldið er innheimt til að standa undir hluta af framkvæmdakostnaði nýs Hringvegar um Hornafjörð og hluta af rekstrarkostnaði mannvirkisins. Samkvæmt lögum er Vegagerðinni heimilt að innheimta veggjöld í þeim tilgangi. 

  • Money and Coins Icon

    Tekjurnar verða nýttar til að greiða niður hluta framkvæmdakostnaðarins og standa undir hluta af rekstri og viðhaldi nýja vegarins og brúarinnar. 

  • Bridge Over Canyon

    Almennt eru öll ökutæki sem aka um gjaldskyldan vegkafla gjaldskyld, hvort sem um er að ræða fólksbíla, rútur eða vörubíla. Tiltekin ökutæki í neyðar- og almannaþjónustu eru undanþegin. 

  • Image by Ruta Gudeliene

    Gjaldskylda stofnast þegar ekið er um skráningargáttir við brúna. Búnaðurinn les númeraplötu ökutækisins og skráir ferðina. Staðsetning búnaðar er austan við Djúpárafleggjara. 

  • Digital Ticket Illustration

    Nei. Gjaldtakan er rafræn og engin tollhlið eða greiðslustöð er á veginum. Myndavélar lesa númeraplötur ökutækja á ferð. 

  • Image by Firdouss Ross

    Ef ökutækið fer ekki um gjaldgáttina sjálfa er ekkert veggjald innheimt. 

Verð og greiðslur

  • Image by rupixen

    Stök ferð kostar 1.500 kr. fyrir ökutæki undir 3,5 tonnum, 2.100 kr. fyrir ökutæki frá 3,5 til 7,5 tonna og 4.500 kr. fyrir ökutæki yfir 7,5 tonnum. Nánari upplýsingar um afslætti og mánaðarhámark eru í verðskrá á spolur.is

  • Car Interior View

    Ekki er þörf á að skrá ökutæki í kerfið. Það gerist sjálfkrafa þegar ekið er um skráningargátt (myndavél og greiningarbúnaður). 

  • Image by Towfiqu barbhuiya

    Alla jafna birtist mánaðarlega krafa í heimabanka. Einnig er hægt að greiða fyrir stakar ferðir á greiðslusíðu spolur.is.  

  • Piggy Bank and Coins

    Já. Þegar farnar eru fleiri ferðir innan sama mánaðar lækkar verð á hverja ferð sjálfkrafa samkvæmt gildandi verðskrá Spalar. Þar kemur einnig fram hámarksgjald á mánuði fyrir hvern þyngdarflokk. 

  • Image by Chanhee Lee

    Gjald er innheimt í lok mánaðar í heimabanka. Þar koma gjalddagi og eindagi greiðslu fram.  

    Yfirlit yfir ferðir og greiðslur er aðgengilegt á Mínum síðum á spolur.is. 

  • Image by SumUp

    Kvittanir og reikningar eru vistaðir á Mínum síðum á spolur.is og þar er hægt að sækja þá á PDF-sniði. 

  • Image by Kelly Sikkema

    Ef ferð er ekki greidd innan tilskilins frests getur viðbótarkostnaður bæst við og krafa verið send eiganda ökutækisins.

  • Image by Afif Ramdhasuma

    Já. Teljir þú að veggjald hafi verið lagt á með röngum hætti getur þú sent inn athugasemd eða andmæli á spolur.is. Tilgreina þarf skráningarnúmer ökutækis, dagsetningu ferðar og númer reiknings, ef við á.  

Ökutæki, undanþágur og sérstök tilvik 

  • Image by Ian Taylor

    Neyðarbílar eru undanþegnir veggjaldi. Sama á við um ökutæki björgunarsveita og lögreglu og önnur ökutæki sem falla undir skilgreindar undanþágur vegna almannaþjónustu. 

  • White Bus on Highway

    Veggjaldið ræðst af þyngdarflokki ökutækis samkvæmt verðskrá. Að öðru leyti gilda ekki sérstakar greiðslureglur um rútur og vörubíla. 

  • Image by CHUTTERSNAP

    Nei. Ekki er gert ráð fyrir sérstöku lægra gjaldi fyrir rafbíla eða önnur umhverfisvæn ökutæki. 

  • Image by John Cameron

    Erlend ökutæki eru gjaldskyld með sama hætti og önnur ökutæki. Fyrir bílaleigubíla er gert ráð fyrir að bílaleigan innheimti veggjaldið af viðskiptavinum sínum samkvæmt sínum skilmálum. 

  • Off-Road Adventure

    Ökumenn bíla á erlendum númerum geta greitt veggjaldið á spolur.is. Þá mun ferðafólk sem kemur hingað til lands með sínar eigin bifreiðar þurfa að greiða fast akstursgjald fyrir það tímabil sem það dvelur hér á landi.  

Skráning upplýsinga og persónuvernd 

  • Image by Kristaps Grundsteins

    Kerfið skráir þær upplýsingar sem eru nauðsynlegar til að staðfesta ferð og innheimta veggjald, svo sem númeraplötu, tíma og staðsetningu ferðar. 

  • Data Server Room

    Upplýsingar og myndir sem tengjast númeraplötum eru aðeins varðveittar eins lengi og nauðsynlegt er til að ljúka innheimtu og sinna lögbundnu hlutverki kerfisins. 

  • Image by Jason Dent

    Meðferð upplýsinga fer fram í samræmi við lög um persónuvernd. Aðgangur að gögnum er takmarkaður og upplýsingarnar eru aðeins notaðar í þeim tilgangi sem þær voru skráðar fyrir. 

Nýi Hringvegurinn um Hornafjörð 

  • hoffelssbru bridge in Hornafjörður

    Nýi vegurinn styttir Hringveginn um 12 km og leiðina að Höfn enn meira. Þremur einbreiðum brúm fækkar á Hringveginum og eftir standa 26 slíkar brýr. Framkvæmdin fól í sér lagningu 19 km af þjóðvegi og 9 km af hliðarvegum auk fjögurra nýrra tvíbreiðra brúa. Eldri vegur verður áfram nýttur fyrir innansveitarumferð. 

  • Winter

    Vetrarþjónusta verður 5 daga vikunnar á 987 Hornafjarðarvegi og á 988 Djúpárvegi þ.e.a.s. alla daga nema þriðjudaga og laugardaga.

Frekari upplýsingar 

  • Spolur-Symbol

    Á spolur.is er hægt að skoða verðskrá, skrá ökutæki, greiða ferðir, nálgast reikninga og senda inn fyrirspurn eða athugasemd í gegnum netfangið spolur@spolur.is

Spurt og svarað 

Hér eru svör við algengum spurningum um gjaldtöku, greiðslur og umferð um nýju brúna yfir Hornafjarðarfljót.

bottom of page